Hvað á þetta að þýða Hermann?
1.12.2009 | 09:51
Ja nú er Aliber hissa. Fyrirtæki í rekstri á kreppuklakanum sem skilar hagnaði. Þetta eru fréttir til næsta bæjar og jafnvel lengra. Maður hélt að það væri ekki hægt að reka fyrirtæki yfir núllinu í þessu árferði, það væri tilgangslaust að einusinni reyna.
Það eina sem kemur til greina er að það sé verið að svindla á neytendum með því að rukka himinhátt verð fyrir eldsneyti og þjónustu. T.d. hef ég heyrt að súkkulaðistykki hjá NEinum séu allt að 4% dýrari en á sambærilegum stöðum.
Það er algerlega ósiðlegt að skila hagnaði þegar fólk er að missa vinnuna hér og þar í samfélaginu vegna tapreksturs og lélegra stjórnunarhátta í öðrum fyrirtækjum. N1, við fólkið, krefjumst þess að þið látið reksturinn ganga verr til að hækka almenningsálitið. Óþarfi er að ráða nýtt starfsfólk eða þess háttar enda líður flestum vel á atvinnuleysisbótum.
Ef þið hættið þessu ekki, þá neyðumst við til að hringja í Skattgrím J og láta hann leggja enn einn skattinn á ykkur til að berja niður þennan hagnað.
over and out
![]() |
Hagnaður hjá N1 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Rosalega átt þú bátt ef að þín heitasta ósk sé að berja niður hagnað hjá fyrirtækjum í landinu.......Er það svona hræðilegt að fyrirtæki síni hagnað ??....Í hvaða veröld lifir þú vinur ??.....
jhb (IP-tala skráð) 1.12.2009 kl. 13:24
jhb: ég held að þetta hafi verið grín og örugglega meint sem hrós til N1 fyrir að skila hagnaði á svo erfiðum tímum...
Gummi (IP-tala skráð) 4.12.2009 kl. 00:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.