Afnám fjármagnstekjuskatta #2
22.3.2010 | 15:09
Er þetta ekki fyrsti liðurinn í að afnema fjármagnstekjuskatt með öllu á Íslandi?
Eru eftir þetta ekki haldlítil rök að rukka bara 18% skatt af vaxtatekjum, eru þetta ekki allt laun?
Sjá reiðifærslu mína frá því fyrr í dag.
kv,
ÓS
Hlutabréfasala skattlögð eins og launatekjur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Ef fólk þarf að greiða fullan tekjuskatt af öllum vaxtatekjum sínum, þá mun enginn heilvita maður leggja peninga inn í banka, sem þýðir að það verða engir peningar til að lána út. Fjármagn leitar alltaf þangað sem það getur ávaxtað sig mest og ef við snarhækkum fjármagnstekjuskatt, mun fjármagnið leita í aðra arðbærari kosti.
Muddur, 22.3.2010 kl. 15:29
Það er nú regin munur á því að kaupa hlutabréf á almennum markaði og selja þau þar aftur, eða fá hluta af launum sínum greidda í hlutabréfum. Annað eru vaxtatekjur (eða tap), hitt eru laun (og verður aldrei tap skv. þessum kaupaukasamningum).
Sigurður Geirsson (IP-tala skráð) 22.3.2010 kl. 15:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.