Skattahækkanir eru verðbólgufóður

Gylfi Arnbjörnsson segir að ekki sé "hægt að sjá að eitthvað verðbólgufóður sé í gangi". Hvað með allar skattahækkanirnar? Ég hefði nú haldið að skattar myndu hækka vöruverð talsvert, ekki satt?

Gylfi vill líka að fyrirtæki taki á sig alla kostnaðaraukningu án þess að velta því út í verðlagið. Veit hann ekki hvernig fyrirtæki virka? Vill einhver reka fyrirtæki í góðgerðarstarfsemi? Ef fyrirtæki mega ekki hækka verð vegna aukins kostnaðar þá geta þau alveg eins hætt starfsemi í stað þess að vera rekin með enn meira tapi og fara á endanum á hausinn. Staða fyrirtækja í landinu er ekki beint sú besta þessa dagana - og hverjir vinna hjá fyrirtækjunum, jú einmitt fólkið í landinu.

mbk,

ÓS

 

 


mbl.is „Gagnrýnisvert hvernig fyrirtækin hegða sér"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Gylfi er eitt hallærislegasta skoffín í seinni tíð.  Nautheimskur framapotari sem hugsar eingöngu um eigin hag.  Þvílíkur bullari og hálfviti.

Guðmundur Pétursson, 24.3.2010 kl. 11:52

2 identicon

Jú, mikið rétt. Hann Gylfi karlinn er ekki skarpasti hnífurinn í skúffunni.

Jón (IP-tala skráð) 24.3.2010 kl. 13:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband