Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
Bull
22.1.2009 | 12:43
Hef séð þá beita gasinu og skoðað eins mörg myndbönd af þessu og ég hef getað komist yfir.
Það er ósköp einfalt hvernig þetta virkar.
Lögreglan varar við, síðan fara brúsarnir á loft og þessu er sprautað í allar áttir. Þetta fer einfaldlega á þá sem verða í vegi fyrir því. Þetta fer á þá sem standa næst lögreglumönnunum, næst þeim lögreglumönnum sem hafa gefið út viðvörunina. Ef þú stendur við þá, þá færðu gasið á þig.
Ég skoðaði myndir sem einhver sagði að sannaði að lögreglan miðaði á ljósmyndara, að vísu sagði einhver að þessar sömu myndir sönnuðu að þeir miðuðu á augu en gott og vel. Staðreyndin er sú að þeir sem halda á brúsunum standa fyrir aftan lögreglumenn með skyldi og teygja sig yfir þá. Þegar maður lyftir brúsa hátt upp og sér ekki almennilega er erfitt að ætla sér að miða á ákveðna einstaklinga í þéttskipuðum hóp og hvað þá í augun á þeim.
Eitt að lokum
Burt með Davíð og dagsetjum kosningar.
M.b.k.
Sá gamli
Segja vísvitandi sprautað piparúða á fréttamenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eitt vígi eftir.
22.1.2009 | 12:06
Þá sýnist mér forsætisráðherra einn eiga eftir að fara í hinar margfrægu kosningabuxur.
Ég verð þó að segja að ekki hugnast mér tillaga Framsóknarmanna um að hoppa upp í sæng með VG og Samfylkingu fram að einhverjum ónefndum kosningadegi. Sé ekki að það sé neitt annað en snúningur að hætti borgarstjórnmála og það er það allra síðasta sem við þurfum á að halda núna.
M.b.k.
Sá gamli
Ekki hjá því komist að kjósa á þessu ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ályktun um ástandið
22.1.2009 | 08:08
Við hjá aliber-blogginu viljum koma á framfæri eftirfarandi ályktun:
Mótmælin við Austurvöll byrjuðu sem góð hugmynd og mættum við þangað til að fylgjast með og skoða aðstæður til að geta myndað okkur óháða skoðun. Hinsvegar hafa þessi mótmæli snúist upp í óeirðir og djöfulgang síðustu tvær nætur. Mótmæli þar sem mótmælendur og opinberir starfsmenn slasast og eru frá vinnu og fjölskyldu um skemmri eða lengri tíma eru ekki lengur mótmæli heldur óeirðir.
Við krefjumst þess að aðilar ábyrgir fyrir beinbrotum og gangstéttarhelluköstum og öðrum slíkum ,,aktivisma" verði færðir fyrir dóm og látnir taka út fulla refsingu fyrir sín brot ekki síður en strax.
Mótmæli eru eitt en aktivismi og óeirðir eru annað. Skýr mörk eru þar á milli og hvetjum við fólk til að fordæma þessar aðgerðir fárra afvegaleiddra einstaklinga sem bitna á fjöldanum sem vill koma skoðunum sínum friðsamlega á framfarir.
Lifið heil.
ÓS og ÞIG
(bitri og gamli)
Tveir lögreglumenn slasaðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sá margt fínt, og margt ljótt þarna.
20.1.2009 | 17:46
Sá gamli mætti við alþingi til að sýna sig og sjá aðra.
Margir voru góðir í mótmælunum. Góð skilti og mikill hávaði. Var sérstaklega ánægður með gaurinn með trommusettið.
En, enn og aftur mætir fólk og grefur undan málstaðnum. Af hverju í ósköpunum þarf að hrinda lögreglumönnum og ögra þeim í sífellu? Er verið að mótmæla blásaklausum ríkisstarfsmönnum?
Ég sá grímuklædda einstaklinga hrinda lögreglumönnum, láta sér ekki segjast og almennt ögra þeim. Öskra síðan eins og krakki í frekjukasti þegar lögreglumaður grípur um handlegginn og reynir að draga viðkomandi í burtu. Hverju þjónar þetta?
Það sem var þó ljótast voru einstaklingar sem mættu með púðurkerlingar og kveiktu í og hentu í lögreglumenn. Það sá ég oft. Það er stórhættulegt, fólk slasar sig á þessu, þetta springur nefnilega. Af hverju að henda þessu í lögreglumenn?
En, að öðru leiti flott mótmæli. Mikill hávaði og það þurfti að fresta þingfundi.
M.b.k.
Sá gamli
Þjóðin var í Alþingisgarðinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýja Ísland
11.1.2009 | 17:32
Nýja Ísland verður reyst úr rústum þess gamla. Þetta verður mikið fagnaðarefni fyrir almenning því loksins getum við venjulega saklausa fólkið lifað eðlilegu lífi án þess að eiga á hættu að verða fyrir barðinu á græðgi bankamanna. Okkur verður borgið og allir verða hamingjusamir og hreinir.
Fyrrverandi bankamönnum, útrásarvíkingum og spákaupmönnum (stórum sem smáum) verður gert að ganga með stórt gult dollaramerki í barminum svo við venjulega fólkið getum auðveldlega greint þá sem eru með óhreinar hendur. Hús þeirra og fyrirtæki skuli einnig merkt svo við fólkið getum gert upp við okkur hvort við verslum við aðila sem höfðu hugsanlega hönd í bagga með að fella fjármálakerfi og sjálfsvirðingu Íslands.
Réttindi þeirra merktu skulu ekki jöfn þeirra sem hreinir eru. Ef einhver grunur leikur á misferli eða óhreinu í pokahorninu skal dæma þá aðila og refsa á dómstóli götunnar því eins og allir vita þá er opinberum dómstólum ekki treystandi vegna guls dollaramerkis við innganginn.
Hugsanlega verður nauðsyn að setja upp verndarbúðir eða athvörf fyrr þá merktu, til þess að vernda þá frá reiði almennings að sjálfsögðu, hvað annað? Þar gætu þeir unnið ýmis verk fyrir þjóðina sem þeim hæfir, svo sem reikna gengisvísitölur, afgreiða lán, prufa skófatnað og fleira gagnlegt.
Nýja Ísland verður fyrirmyndarríki sem aðrar þjóðir munu öfunda og reyna að herma eftir, jafnvel biðja um inngöngu í fyrirmyndarríkið algerlega af sjálfdáðum. Nýja Ísland mun sigra heiminn og verða leiðtogi þjóðanna!
góðar stundir,
sá bitri
Vilhjálmur: Ekki rétt að kenna bönkunum um allt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nojaður kommi og 8 ára stúlkubarn
3.1.2009 | 15:28
Mikið djeskoti er komminn og samsæriskenningagjallarhornið Einar Már Guðmundsson vel innmúraður. Hann heldur sömu ræðuna trekk í trekk, á þeim vettvangi sem honum sýnist, þegar honum sýnist. Hef annars rýnt örlítið í þessa ræðu hans og fundið fátt annað við hana en innlifunina, hann er lifandi flutningurinn hjá honum, það má hann eiga.
Annars finnst mér í hæsta máta klígjukennt að stilla 8 ára stúlkubarni upp í púltinu. Aðeins of Ameríkst tilfinningarúnk fyrir minn smekk.
M.b.k.
Sá gamli
Mótmælaróður hertur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Á maður að trúa því?
31.12.2008 | 17:29
Eftir að hafa séð þetta og þetta á maður einhvernveginn bágt með að trúa því að þetta fólk hafi komið í sérstaklega friðsamlegum erindagjörðum.
Fæ ekki séð að það að hlaupa niður starfsmenn stöðvar tvö eða kokkinn á borginni sé rosalega friðsamlegt.
Sorry aðgerðasinnar (vil ekki kalla ykkur mótmælendur, það er of vítt hugtak), ég bara trúi þessu ekki.
Sá gamli
Mótmælin áttu að vera friðsamleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mætti ég allavega fá að hlusta á stjórnmálamennina...
31.12.2008 | 14:20
... þá loksins þeim er gert að sitja fyrir svörum?
Hafa ruðst inn á Hótel Borg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þar hafiði það
18.12.2008 | 13:51
Mótmæli halda áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ástæða lækkunar FED
16.12.2008 | 21:00
Fólk furðar sig hvers vegna FED lækkar stýrivexti á meðan þeim er haldið háum hér á landi. Skýingin er sú að í BNA eru menn að berjast við að örva hagkerfið og koma því upp úr þeirri lægð sem er skollin á. Það er gert með því að gera lánsfjármagn ódýrara og aðgengilegra fyrir banka og fyritæki. Ótrúlegt en satt þá er nú mikil hætta á verðhjöðnun í BNA sem er að sumu leiti jafn slæm og verðbólga.
Hér á landi er hinsvegar verið að berjast við verðbólgu, það er gert með því að hækka vexti í þeim tilgangi að styrkja gengi gjaldmiðilsins. Hærri vextir draga til sín fjárfesta sem vilja ávaxta peninga sína á háum vöxtum en taka á sama tíma gengisáhættu. Verð á innfluttum vörum ber ábyrgð á um 40% af neysluverðsvísitölunni og því er reynt eftir fremsta megni að styrkja gengi krónunnar í baráttunni við verðbólgu.
kv,
sá bitri
Vextir 0-0,25% í Bandaríkjunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |