Hækka skatta, lækka laun?
16.4.2009 | 08:53
Miðað við yfirlýsingar bólfélagans allavega...
Þeim gamla þykir undarlegt að ætla að skella stóru bremsunni á staðnað hagkerfi.
M.b.k.
Sá gamli.
Húsfyllir á fundi Samfylkingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Undarlegur réttlætingarkór
15.4.2009 | 12:12
Hér á bloggheimum fara margir mikinn til að bera í bætifláka fyrir hústökufólkið.
En hverjar eru staðreyndir þessa máls?
Fólkið braust inn í húsið, í óþökk eiganda.
Lögregla bað fólkið um að yfirgefa húsið, gaf þeim nægan frest og greip síðan ekki til aðgerða fyrr en þessi frestur var löngu liðinn.
Lögreglan fær síðan yfir sig ávexti, málningu og innihald slökkvitækis svo eitthvað sé nefnt.
Ég sé suma hrópa á að útrásarvíkinga ætti frekar að handtaka. En er ekki verið að rannsaka þau mál öll? Eða eigum við að handtaka fólk áður en grunur er staðfestur? Og hvernig kemur það þessu máli við? Fyrir utan að einn þessara meintu útrásarvíkinga á félag, sem á þetta hús. Má þá brjótast inn til hans? Hvar má brjótast inn? Hjá dæmdum glæpamönnum? Eða grunuðum eins og í þessu tilfelli?
Hversu göfugt sem markmiðið var, þá var þetta innbrot. Og móttökurnar sem lögreglan fékk eru til háborinnar skammar.
M.b.k.
Sá gamli
Sextán handteknir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þýðing á páskaguðspjallinu
8.4.2009 | 17:09
Boðskapur páskanna hefur þynnst út og breyst talsvert síðustu 1982 árin. Í nýrri biblíuþýðingu hefur ljósi verið varpað á hvað raunverulega gerðist páskahelgina árið 30 e.k (+/-5ár). Hér verður stikklað á stóru í sögu þessara örlagaríku daga í lífi Jesús Krists.
Sagan segir að Jesú hafi verið á röllti með félögum sínum lærisveinunum, þeir hafi verið agnarögn í glasi eins og gerist þegar maður getur breytt vatni í vín, og komið að kebabstað á götuhorni. Þar gæddu þeir sér á fínasta kebab og á JK að hafa grínast með að þetta væri svo gott að þeir gætu allt eins verið að gæða sér á holdi sínu og blóði. Ekki hafi þeir viljað vaka of lengi því frést hafði af góðu partíi daginn eftir, á föstudegi.
Föstudagurinn langi byrjaði svo hressilega. Jesú var fengin stór bjórtunna sem hann þurfti að bera um götur bæjarins í átt að veislustaðnum. Á leiðinni rákust þeir félagar á vegfaranda sem vildi endilega gefa JK forláta derhúfu. Derhúfa þessi var engin venjuleg derhúfa, heldur voru 2 bjórdósir festar á hvorri hlið og lágu rör úr þeim og niður að munni þess sem bara hana á höfði sér (svipaðar húfur náðu aftur vinsædlum u.þ.b. 1965 árum síðar). Mjöðurinn lak úr þessari húfu og bar Jesú hana vel að sögn viðstaddra.
Þegar komið var að skemmtistaðnum var tunnan reyst upp á litla þúfu og hún opnuð. Hóf JK þá drykkjuna af alvöru. Tók hann svo hressilega á því að hann varð alveg ,,krossfestur", en það var einmitt slangrið sem notað var yfir það sem í dag kallast að ,,vera á eyrunum", ,,piss fullur" eða ,,peð ölvaður". Partíið hélt áfram fram eftir degi og fram á nótt. Kom þá miskunsamur vegfarandi og gaf 'Jebba K' (en það var vinnuheiti hans það kvöldið) vatnssopa til að jafna magann. Að lokinni veislunni lá Jesú hálfur upp á tómri tunnunni og í þann mund sem hann var að missa meðvitund kom norðanmaður að nafni Ragnar til hans og bauð honum staup af ísköldu Brennivíni. Við þann sopa féll Jesú í djúpan áfengissvefn.
Morguninn eftir komu lærisveinar Krists að honum við við tunnuna með tunguna úti. Þeir sulluðu í hann smá vatni til að koma í veg fyrir ofþornun og drógu hann heim í helli. Jesú svaf svo úr sér og kom sér ekki almennilega á fætur fyrr en á sunnudegi. Jóhannes lærisveinn og grínisti talaði um upprisu Krists á sunnudeginum því Jesú var svo skel-þunnur að hann gat varla labbað. Drifu þeir félagarnir sig beint á sveitta Kebab staðinn sem þeir höfðu fundið á fimmtudeginum áður og fengu sér alvöru þynnkumat. Daginn eftir var Jesú enn að jafna sig eftir helgina og vottur af hausverk gerði vart við sig ef hann var með snöggar hreyfingar. Símon Pétur talaði þá um annan í upprisu, en sú hugmynd var fljótt kveðin niður. Símon Pétur fór síðar norður á bóginn og hélt þar upp á annan í upprisu reglulega með fjölskyldu sinni.
Jesú náði sér aldrei almennilega eftir veisluna miklu og kvartaði undan verkjum í kviði og hjarta. Áður hafði þýðingin á orðinu 'passion' verið ástrýða og hamingja, en í raun þýðir það pynting og pína. Um 40 dögum eftir upprisuna lést Jésú af völdum áfengiseitrunar og langvarandi einkenna skorpulifrar.
Lærisveinarnir fóru þá hver í sína átt og héldu áfram að halda góðar veislur vítt og breitt um lönd, fyrir utan Júdas en hann aðhylltist bindindismennsku og fór eftir nafninu Alkíus Anónimus eftir fráfall Krists.
Líklegt er að nokkur ár séu enn í að þessar frásagnir verði færðar í Biblíuna og önnur ,,heilög" rit vegna deilna um orðalag og hvort dósirnar á derhúfuni hafi verið tvær eða fjórar. Allt mun þetta þó koma með tíð og tíma.
páskakveðjur
ÓS Bitri
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Endalausar rökræður...
6.4.2009 | 10:27
Í Washington er rökrætt. Ísland er hafið yfir rök og ræður. Á Íslandi er Bloggað!! Áfram Ísland!
kv,
Hr. Bitur (ÓS)
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 10:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ísland er ekki svona mikils virði
1.4.2009 | 12:23
Einstaklega athyglisvert. Það kom gat á þjóðarskútuna, gjaldeyrisleka varð vart. Allir menn settir í að tappa gatið sem fyrst og það tókst, krónan styrkist um 1,4% í fyrstu viðskiptum dagsins. Síðustu daga hafði borið á að menn sinntu ekki skilaskyldu vegna viðskipta við útlönd.
Hvað í ósköpuum gerist svo þegar þessum blessuðu höftum verður aflétt? Hvað ætlum við að hanga lengi á tönnunum á þessum stalli sem okkur ber ekki að vera á? Krónan er ennþá allt of hátt skrifuð, verðlag á Íslandi er enn of hátt. Við erum ekki svona mikils virði, sættum okkur við það. Hvað gerir okkur og okkar framleiðslu verðmætari en það sem gerist í Póllandi, Taílandi og Brasilíu? Ekkert.
Því fyrr sem þjóðin sættir sig við staðreyndir því betra. Já, heimili og fyrirtæki munu fara á hausinn sem aldrei fyrr, en þetta eru líka heimili og fyrirtæki sem hafa ekki efni á skuldum nánast sama hve mikla niðurfellingu þau fá.
Afléttum höftunum, tökum skellinn, byrjum svo uppbygginguna af krafti. Þessi millitímabilsdans er engum til góðs. Ef höftin verða höfð lengi þá verður Ísland kært fyrir brot á EES samningnum og við rekin úr honum. Þá fyrst versnar ástandið.
Þessar sveiflur í gengi krónunnar eru skýr vísbending um að jafnvægisgengi krónunnar er umtalsvert lægra, jafnvel nálægt 50% lægra en það er í dag. Opnið augun gott fólk, Ísland er verðlaust.
kv,
sá bitri.
Krónan styrkist um 1,41% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vanskapaða óskabarnið
1.4.2009 | 09:46
Hví er stjórn Eimskipa ekki búin að fara fram á greiðslustöðvun eða lánveitendur búnir að krefjast gjaldþrotaskipta? Hvaða rök eru fyrir því að láta fyrirtæki skila tapi endalaust og þynna þannig veð lánardrottna.
Eðlilegast væri að smella Eimskipum í gjaldþrot og selja rekstrareiningar þess til aðila sem kunna að reka fyrirtæki á ábyrgan hátt án bullandi taps. Gjaldþrot þýðir ekki að starfsemin hætti, þvert á móti, fyrirtækið hættir að vera lifandi lík á spena ríkisbankanna og kemst á lappir úr hjólastólnum með nýjum eigendum. Störfum mun fækka og rekstrareiningum verður lokað en ef þess þarf þá er best að gera það sem fyrst. Ég er ekki tilbúinn að borga fyrir taprekstur Eimskipa með mínum sköttum. Ríkisbankarnir eru ekki það öflugir að þeir geti pissað út 6ma.kr. á þriggja mánaða fresti í loftbólufyrirtæki með neikvætt eigið fé upp á um 1/3 af eigin fé Kaupþings.
Er verið að bíða eftir að ,,markaðsaðstæður" batni og þá verði skyndilega blússandi hagnaður á næstu mánuðum? Er e.t.v. verið að halda Eimskupum í öndunnarvél á kostnað skattborgara á meðan samkeppnisaðilum (sem virðast ekki eins illa staddir) blæði hægt og rólega út og fari í þrot, svo vanskapaða ,,óskabarnið" tóri áfram?
Öllum samsæriskenningum sleppt þá er staða Eimskipa grátleg, fyrirtæki með neikvæða eiginfjárstöðu upp á 30ma.kr. og stanslausan taprekstur ætti að vera endurskipulagt undir eins.
kv,
sá bitri
Áframhaldandi tap hjá Eimskip | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Okkar tillaga að nafni
31.3.2009 | 08:55
Við leggjum til að nafninu verði breytt í Kappaflingfling til minningar um betri og bjartari tíma, sem greinilega er verið að reyna að endurvekja með nafnbreytingunni. Með því að velja þetta nafn næðist fram mikill sparnaður vegna lægri auglýsingakostnaðar. Hægt væri að endurnýta auglýsingarnar með John Cleese og allflestir Íslendingar þekkja þetta nafn. Þá væri lítið mál að breyta skiltum og merkingum, einungis þarf að skjóta nokkrum stöfum inn í nafnið og lógóið má vera það sama.
Einfalt fljótlegt og borðliggjandi.
kveðjur,
Aliberar
Kaupþing skiptir um nafn á næstunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athygliverð áhersla
22.3.2009 | 18:47
Þessi málflutningur VG manna finnst mér pínu athygliverður í núverandi ástandi.
Þetta var áberandi fyrir síðustu kosningar en þá voru allir flokkar í þessum leik, þessu skítkasti sín á milli. Merkilegar sættir á milli Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks eftir þær kosningar í raun og veru.
En í núverandi ástandi hefði maður haldið að flokkarnir segðu okkur kjósendum hvað þeir ætluðu að gera til að koma okkur út úr þessari kreppu. En þess í stað segir Steingrímur að aðalmarkmiðið sé að halda Sjálfstæðisflokknum frá völdum.
Hversu löng er þá stefnuskrá VG?
Mér fannst fulltrúi hagsmunasamtaka heimilanna komast vel að orði í Silfri Egils í dag þegar hann sagði að pólitík á Íslandi væri eins og Morfís keppni og gengi út á það að drulla yfir hugmyndir annarra.
Mér er í raun slétt sama hvaða bókstafur stendur fyrir hópinn, svo lengi sem fólkið ætlar sér að vinna vinnuna sína.
M.b.k.
Sá gamli
VG bundin - á móti Sjálfstæðisflokknum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Siðleysi eða nauðsyn?
18.3.2009 | 19:32
Gylfi þarf að vara sig þegar hann gasprar um siðleysli. Þegar samið var um að fresta launahækkun verkamanna var það gert að beiðni fyrirtækjanna.
Það er ekki val að fara eftir kjarasamningum. Ef það væri svo þá væri litið um kjarasamninga. Vandinn við kjarasamningana er sá að ef fyrirtæki vill greiða hærri laun þá er það eins og að greiða lægri laun, ekki leyfilegt. Ef HB Grandi hækkar laun starfsmanna sinna veldur það miklu ójafnvægi sem gæti orðið Gylfa til talsverðra vandræða.
Það að borga út 0,6% arð á virði fyrirtækis getur seint kallast siðlaust. Þá er um 20% neikvæða raunávöxtun á eign hluthafa í fyrirtækinu að ræða í þeirri verðbólgu sem hefur verið síðasta ár. Sumir eigendur fyrirtækja hafa tekið lán til að fjármagna hlut sinn (sem er mjög eðlilegt ef gírun er hófleg). Þessir hluthafar þurfa að greiða vexti af lánum sínum, arðgreiðsla er eina leiðin til að greiða slíkar afborganir.
Síðan hvenær hafa fyrirtæki sem skila hagnaði talist siðlaus? Er nú orðið ólöglegt, siðlaust, siðblint og rangt að setja fyrirtæki ekki á hausinn á Íslandi?
kv,
sá bitri...
Hreinlega siðlaust | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Krossför Moggans gegn fyrrum eigendum Kaupþings
6.3.2009 | 20:25
Morgunblaðið fer hamförum í fréttaflutningi af lánveitingum til fyrrum eigenda Kaupþings og stórra viðskiptavina. Hvers vegna birtast engar fréttir af lánveitingum hinna bankanna til eigenda sinna? Hvers vegna er ekkert vitnað í lánabók Landsbankans og Ponzi innlánana þar?
Gæti það ekki einfaldlega verið vegna þess að Mogginn er ekki með flugumann í skilanefnd Landsbankans, eða vegna þess að starfsmenn Morgunblaðsins eru enn hollir fyrrum eigendum og passa sig að grafa ekkert slæmt upp um þá (í von um að fá vinnu aftur seinna)?
Þetta einelti gagnvart Kaupþingi er einstaklega athyglisvert. Bankaleyndin farin út í buskann og ekkert gefið upp hvað þessir aðilar sem tóku lán hafi veðsett á móti. Svimandi tölur og upphrópunarmerki án alls samhengis er það sem hefur einkennt þennan í besta falli DV-legan fréttaflutning Morgunblaðsins um Kaupþing. Maður spyr sig hvað Morgunblaðið hefur á móti Kaupþingi og eigendum þess umfram hina bankana. Eru þetta angar af hatri Björgúlfsfeðganna í garð Ólafs Ólafssonar og samstarfsmanna eða er þetta illa dulin aðferð til að draga athyglina frá eigin sora með því að benda á aðra?
Af hverju er þá ekkert grafið upp um Glitni? Höfðu Björgúlfsfeðgar einhver viðskipti þar sem ekki má grafa upp heldur? Eða liggur skýringin einfaldlega í því að skilanefnd Kaupþings ef svo hriplek og ófagmannleg að völdum tölum er lekið út? Það er gott að eiga vini á réttum stöðum þegar maður vinnur hjá Morgunblaðinu.
Ræður Ný-Þór enn?
kv,
sá bitri....
Lánuðu sjálfum sér milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |